bilað að gera!

Hallóhalló ætlaði bara að afsaka að ég hef ekki bloggað í soldinn tíma! ástæðan er fyrir því að það er búið að vera svo mikið að gera að ég hef ekki tíma í bloggskrif eins og stendur. Kem með e-ð krassandi blogg eftir prófatörn!

vona að þið séuð ða hafa það gott!!

ástípoka

- lára!

Posted in Uncategorized | 2 Ummæli

Wanaka

Jæja! Núna er allt á fullu í skólanum! Skiladagur fyrir öll stóru verkefnin eru í byrjun október nánast á sama degi! Prófin byrja 20 október svo þetta er allt að skella á! Þórhildur mín er búin að bóka flug til mín og kemur 28 des! Ég sko titra af spenningi!

 Ég skrapp til Wanaka um helgina! Wanaka er bær sem er c.a. 3 tímum frá Dunedin og er skíðabær! Við fórum 12 krakkar saman! Gistum á Base backpackers sem var bara hið fínasta hostel. Vorum sett í 2 herbergi eitt 8 manna og eitt 10 manna. Ég var svo heppin að vera í 8 manna því í því herbergi vorum bara við krakkarnir og enginn sem við þekktum ekki. Greyjið hinir krakkarnir lentu með fólki sem var frekar subbulegt og illa lyktandi og greinilega búin að vera þarna í viku og hengu bara inn á herberginu tímum saman hahaha. En ég meina við hverju býst maður þegar maður fer á svona backpackers…!

Þetta var rosa spennandi og aldrei ef ég farið í svona skíðabæ og upplifað þessa stemningu. Við mættum þarna á föstudeginum fengum okkur að borða, skoðuðum bæinn og fengum okkur nokkra öllara en svo var bara farið heim því það var ræs kl. 06.30 næsta dag! Við vorum aðeins 5 sem vildum fara á skíði/ bretti en hin ákváðu að fara í fjallgöngur, mountain biking eða á hestbak. Við vorum mætt upp í fjall rúmlega 09:00 og fórum ekki heim fyrr en kl. Fjögur. Við vorum 2 á bretti en hin voru á skíðum. Kim sem var á bretti er alltaf á hjólabretti og hefur farið oft á snjóbretti svo hann var alveg heví góður og skiljanlega nennti ekki að hanga með mér svo ég var mestan tíman ein. Er alveg búin að ná góðum tökum á þessu og dett nánast aldrei haha. En vantar svona pínu meiri tækni. Þegar ég var búin að týna öllum og búin að vera alein í c.a. 1 og hálfan tíma ákvað ég að hingað og ekki lengra nú hætti ég að reyna að vera kúl á bretti og skelli mér á skíði. Ég kann þó að skíða almennilega haha! Fór niðrí skíðaleiguna og spyr hva kosti að leigja skíði. $37 segir stelpan (ég nýbúin að borga 50 dollara fyrir leigu á brettinu og útifatnaði) Var ekki aaalveg að tíma þessu. Þá fer hún e-ð að spurja mig..heyrðu bíddu ertu ekki á bretti af hverju viltu ekki vera á því? Ég segi henni það og stelpan vorkennir mér svona allsvakalega að hún gefur mér fría 2 tíma í kennslu á snjóbretti sem kostar $60!!!! (c.a. 5500 kr.) við höfðum öll ákveðið að hittast kl. 12:30 í kaffiteríunni svo ég var mætt soldið fyrr og sat úti að bíða eftir krökkunum. Enn frekar pirruð. Kemur einhver bretta strákur frá Ástralíu og byrjar að tala við mig og segir að hann viti alveg nákvæmlega hvernig á að láta mig slappa af fyrir brettakennsluna. Og splæsir á mig bjór haha! Síðan bauð hann okkur krökkunum í partý um kvöldið sem reyndar varð ekkert úr en hann var voða næs! Eftir hádegi fór ég svo fór í asskoti fína 2 tíma í kennslu og er bara alveg orðin sleip á brettinu. Núna má bara ekki líða 1 og hálft ár á milli aftur þangað til að ég fer aftur upp í fjöll.

Á laugardagskvöldið sátum við inn 8 manna herberginu öll að drekka í laumi því það má ekki drekka inn á hostelinu haha! Íslenskur strákur sem er að læra að vera skíðakennari í Wanaka kom og kíkti á okkur og við sýndum þeim hvernig íslenskir víkingar haga sér! Wanaka er ekki beint partýbær…eða hér eru alveg nokkrir pöbbar en allt lokar kl. Eitt sem var frekar lame. En ég skemmti mér þó konunglega! Á sunnudeginum var tekið því heldur rólega og farið snemma heim sem var reyndar rosa fínt því ég þurfti að læra alveg heilan helling. En ég mun pottþétt fara til Wanaka aftur maður verður að halda brettahæfileikunum við haha!

Og já æi gleymdi hleðslutækinu á myndavélinni svo það eru engar myndir frá Wanaka:S

 Hér í Dunedin er búið að vera rosa fínt veður upp á síðkastið. Seinasta miðvikudag skelltum við okkur íslendingarnir á kaffihús, sátum úti í sólinni og drukkum bjór! Og ég er ekki frá því að ég hafi fengið pínu tan þann daginn! Núna eru öll blómin byrjuð að blómstra og veðrið verður bara betra með hverjum deginum. Thank god!

Ég er svona aðeins að gæla við þá hugmynd að þegar þórhildur er farin aftur heim í janúar að ég skelli mér bara til ástralíu í einhvern tíma og svo til Malasíu, Cambodiu, Laos, Vietnam og Thailand. Það kostar nefninlega bara c.a. 30 þúsund að fara til Ástralíu og sama að fara frá Ástralíu til Malaysia. En þetta er bara hugmynd sem ég er voða spennt fyrir en þetta kemur bara í ljós! :)

 Annars ætla ég bar aað hafa þetta stutt núna allt of mikið að læra! Bless í bili! :)

Posted in Uncategorized | 3 Ummæli

Mid-semester break

Miðvikudagur 25. ágúst

Föruneyti hringsins(ég, Jason, celia, courtney, andre, kim og dave) héldum af stað í ferðalag til Tauranga á miðvikudaginn 25. ágúst seinni part dags. Flugum til Auckland og keyrðum svo til Matamata þar sem pabbi hans Jasons býr. Það fyrsta sem ég hugsaði þegar við byrjuðum að keyra var: „vá er ég í öðru landi??“  því hér er loftslagið allt öðruvísi, allt umvafið pálmatrjám og mun heitara. Pabbi hans býr á yndislegu bóndabýli með kýr í bakgarðinum. Dvölin hjá pabba hans var rosa skemmtilegt og innihélt hláturskast með rennandi tárum, hálfgert tauga/stress áfall af minni hálfu (Átti eftir að klára ritgerð  fyrir föstudaginn og var orðin pínu stressuð að klára hana) en það var hún „Marígóld“ sem ég átti því hláturskasti að þakka en það er ekki internet hæft að skrifa þá sögu hér haha.

Fimmtudagur 26. Ágúst:

 Við lögðum við af stað til mömmu hans Jasons sem býr í strandarbænum Tauranga. Við ætlum að gista þar alla vikuna. Á leiðinni stoppuðum við til þess að sjá McLaren falls. Vávává hvað allt er fallegt hér.  Blómin eru öll aðspringa út og allt umvafið í risa stórum trjám með bleikum eða rauðum rósum. Hef einnin aldrei séð eins grænt gras á ævinni. Grasið er í alvöru grænna hér hinum megin! Haha! Gatan sem mamma hans Jasons (Della) býr á heitir Papamoa beach road og er nánast alveg við ströndina. Við gengum um ströndina  við stelpurnar týndum kuðunga og skeljar. Fundum geðveika kuðunga sem hægt er að hafa sem hálsmen og svo líka mjög flotta kuðungaskeljar sem eru svona litlir hringir alveg pínu töff að nota sem hring :) Við  Þegar við komum til hennar seinnipart fimmtudags ákvað hún að splæsa á liðið fish and chips sem var pantað á einhverjum veitingastað. Þegar komið var að því að borða kvöldmat þá var sko ekki sest við kvöldmatarborðið heldur settumst við öll á gólfið í hring á teppið inn í stofu.  Með franskar og fisk í miðjunni. Mamma hans settist á gólfið með okkur smurði handa okkur brauð með smjöri og svo áttum við að setja djúpsteiktan fisk, franskar og tómatsósu á brauðið og borða þannig. Hljómar mjög spes en þetta var nú bara asskoti gott :)

Föstudagur 27. Ágúst:

Við sváfum öll út þennan dag. Vorum í raun ekkert búin að á kveða neitt plan. Svo við ákváðum að keyra bara til Rotorua sem er c.a. 45 mín frá Tauranga og sjá svo til. Rotorua er mikill túristabær. Allskonar í boði að gera og svo er hann líka þekktur fyrir náttúrulega heitar laugar, svona bláalóns spa, geysir og eggjafýlu. En sem íslenskur víkingur fannst mér þetta nú ekki eins áhugavert og hinum. Og eggjalyktin var bara eins og lyktin af íslandi haha. En við löbbuðum um svona flottan garð og skeltum okkur í fótabað í einni heitu lauginni. Það var nú ekkert smá vinsælt þegar við fundum playground þar sem við eyddum góðum klukkutíma í að  leika okkur.

 Eftir það skelltum við okkur að luge-a. Veit ekkert hvað þetta heitir á íslensku. En þá fórum við í svona glerkúlulyftu upp á risa fjall og keyrðum svo litla bíla niður fjallið og það var sko mikil keppni í gangi og verið að klessa á hvort annað til þess að vera fyrstur í mark. Ég náði að vera í 2. Sæti einu sinni! Hehe þetta lýtur svona út:

 Eftir þetta fórum við á pizza hut þar sem við eyddum góðum hálftíma í að leita af staðnum því Jason vissi sko alveg hvar staðurinn væri(sem hann gerði ekki) og vildi ekki spyrjast fyrir. (Karlmenn skoh) þegar við vorum að fara af pizza hut skrapp ég á klósettið og að sjálfsögðu missti ég veskið mitt ofan í klósettið. Nýbúin að taka út fullt af pening í hraðbanka svo allir peningarnir mínir voru klósettsvatns blautir (veskið datt ofan í klósett sem ekkert var búið að gera í haha) svo restina af deginum borgaði ég með blautum pening og greyjið afgreiðslufólkið hafði enga hugmynd að þeir væru nýkomnir upp úr klósettinu haha. Þennan dag prufaði ég líka að keyra bíl. Það er bara alls ekki erfitt að keyra á hinum vegarhelmingnum. Svo það ætti ekki að vera vandamál fyrir mig að leigja bíl þegar ég mun ferðast í sumar. Um kvöldið elduðum við þessa fínu hamborgara og skelltum okkur á ströndina með bjór eldivið, gítar, sykurpúða og súkkulaðikex. Þetta var ótrúlega gott kvöld og við skemmtum okkur konunglega. Ótrúlega fyndið hvað það er mikið af stjörnum hérna. Finnst eins og það séu mun fleiri heldur en heima á Íslandinu.

Laugardagur 28. Ágúst

Ég hafði fengið frest til að skila ritgerðinni fram á laugardag á meðan krakkarnir skelltu sér í göngutúr í bæinn var ég heima að klára ritgerðina. Mamma hans Jasons var algjör dúlla var alltaf að koma og athuga með mig hvort mig vantaði eitthvað og vildi endilega búa til kaffi handa mér.  Seinnipartinn löbbuðum ég, Kim og Dave upp á Mount Maunganui. Sem ótrúlega flott fjall rétt hjá húsinu sem við gistum í. Þegar komið var á toppinn var hægt að sjá alveg yfir Tauranga, ekkert smá fallegt.Um kvöldið eldaði Della fyrir okkur kjúkling og lamb. Ekkert smá gott og Celia og Courtney bjuggu til apple crumble í eftirrétt ásamt ís og vanilla clusters. Namminamm. Við vorum frekar róleg þetta kvöld fórum snemma að sofa því planið var að vakna eldsnemma næsta dag.

Sunnudagur 29. Ágúst

 Þetta var æðislegur dagur. Við vöknuðum snemma og keyrðum að fjalli þar semhægt var að labba upp á til þess að sjá rosa flottan foss: wairere falls. Veðrið virtist  alveg ágætlega gott svo við klæddum okkur ekki í nein utanyfirföt nema jakka. Hefðum betur átt að gera það því um leið og við vorum nýbyrjuð að labba þá kom þessi hellidempa og þrumur. Krakkarnir voru missáttir við þessa rigningu svo andre, celia og courtney fóru niður aftur en Ég, Jason, Kim og Dave héldum áfram göngunni. Þetta fjall var alveg fáránlega bratt og mjög erfið ganga en svo mikið þess virði og að það hafi verið grenjandi rigning allan tíma gerði þetta bara mun skemmtilegra og eftirminnilegra. Það var svo mikil drulla á leiðinni að við vorum öll að kiptast á að detta. Það var mjög fyndið. En þegar á toppinn var komið var þetta ótrúlega fallega landslag og fossinn var æði! Ég gleymdi myndavélinni en hér er ein mynd sem dave tók, sýnir kannsk ipínu hversu blaut við vorum.

 Við komum niður öll rennandi blaut og skítug og að sjálfsögðu ekki með föt til skiptana. Svo bíllinn varð ein drulla og við brunuðum heim í sturtu.

Um kvöldið fórum við út að borða á mexicanskann veitingastað skelltum í okkur strawberry margarita. Umræðurnar voru meðal annars, hvaða dýr allir líkjast þetta er útkoman: ég kóalabjörn, kim grinch haha, Andre híena, Celia dádýr eða páfagaukur, Jason gíraffi, Dave moldvarpa minnir mig en ég held að við höfum ekki enn fundið dýr sem courtney líkist haha.

Mánudagur 30. ágúst

Veðrið var alveg æðislegt þennan dag við skelltum okkur í minigolf þar sem Jason vann með yfirburðum á meðan ég og Courtney börðumst um tapsætið en endaði með því að ég var einu stigi hærri en hún og hún varð í seinasta sæti. Keppnistskapið í kim kom alveg í ljós hann var alveg við það að lemja einhvern/ eitthvað með kilfunni af pirringi haha. Eftir Golfið fegnum við okkur sushi take away tókum það með okkur í í einn æðislegan botanical garð og borðuðum á grasinu í góða veðrinu. Fengum okkur svo gelato í eftirrétt og settumst á ströndina og jöppluðum á ís. Á ströndinni var tré sem hefur skolast með sjónum. Strákunum fannst það rosa góð hugmynd að gróðursetja tréið aftur. 

 Um kvöldið skelltum við okkur svo í keilu. Meðalaldurinn á fólkinu inn í keilusalnum var c.a. 70 ára. En við skemmtum okkur konunglega en það var Jason sem var stigahæstur í keilunni líka.

Þriðjudagur 31. ágúst

Vöknuðum seint og skelltum okkur í amerískan morgunmat, egg, beikon og pönnsur. Skelltum okkur í klifurhús. Það var algjör snilld. 

 Fórum heim og kelltum okkur í ljós. Já mamma hans jasons er með ljósabekk heima hjá sér mesta snilld í heimi. Um kvöldið var svo drukkið og farið í leiki eða aðallaega einn leik sem heitir mafía. Þá er dregið spil, einn er morðingi og hinir eiga að getta hver það er. Mjög spennó J kvöldið endaði með brjáluðum danstöktum í stofunni og hópskype við þórhildina mína.

Miðvikudagur 1. september

Jason og Celia ákváðu aðfara í rómantíska göngu upp mount manganui svo við hin ákváðum að keyra bara einhvert og athuga hvort við myndum ekki finna eitthvað skemmtilegt að gera. álfgerður óvissudagur. Við stoppuðum hjá stærsta kiwi sem ég hef séð. Það var svona garður þar sem hægt var að sjá hvernig kiwi eru ræktuð og kaupa allskonar kiwi vörur. 

 við fundum annan leikvöll með risa rennibraut speglasal og völundarhúsi. Þar var leikið sér í dágóðan tíma meðal annars hver gæti fundið leiðina út úr völundarhúsinu fyrstur og  pac man leikur sem var alveg æsispennandi. Eftir þetta fengum við okkur sushi og borðuðum það í sólinni. Fórum síðan heim og þrifum húsið þar sem við höfðum ákveðið að dvelja síðustu nóttina hjá pabba hans jasons í Matamata. Um kvöldmatarleitið voum við mætt í grill heima hjá pabba hans. Þar sem þau voru með gesti frá ástralíu í heimsókn líka. Maður sem var algjör snillingur á gítar svo hann og Dave tóku upp gítarinn og spiluðu og sungu fyrir okkur á meðan við drukkum bjór og spjölluðum.

 Ótrúlega fyndið eftir matinn egir pabbi hans jæja krakkar fáið ykkur pudding. Ég stóð upp og bjóst við að fá búðing en þá var ísí eftirrétt. Þá er s.s. eftirréttur kallaður pudding hérna í Nz. Um kvöldið kveiktum við varðeld og drukkum rauðvín í litlum plastglösum, sungum og spiluðum á  gítar.

 

Fimmtudagur 2. september

lögðum af stað upp á flugvöll um hádegið þegar við komum til Dunedin beið okkar limmó sem skutlaði okkur heim. (það var ódýrara að taka limmu en leigbíl haha veit ekki af hverju)

Æðisleg ferð í alla staði :)

Posted in Uncategorized | 4 Ummæli

hej allehoopa

Helló

 Var að fá próftöfluna mína, ég fer aðeins í 2 próf!

 1. prófið er 20. október og próf nr. 2 er 2. nóvember!! jeijeijj!!  Svo ég fæ góðan tíma á milli…samt kannski einum of góðan. En það er allt í lagi :)  

Prófatíminn er venjulega til 13. nóv svo ég græði þarna 2 vikur til að  gera eitthvað ossalega skemmtilegt :)

Annars er ég bara á fullu að gera ritgerðina mína núna. Ég á að tala um að Hótel séu “home away from home” sem mér finnst bara rugl. Ég fer frekar á hótel til þess að komast í burtu frá heimilinu og það að hafa hreingerningakonu og vera með RISA sundlaug í garðinum og bar er ekki heimili fyrir mér hehe :) Svo þetta verður bara gaman að skrifa um og gagnrýna. Því mjög mörg hótel auglýsa sig svona.

Var að koma úr kickboxtíma! Úfff! þessa vikuna er fitness vika! Þá lærum við ekki nýja tækni heldur keyrum okkur alveg í gegn með því að sparka og kýla í hvort annað og gera allskonar hræðilegar hoppuæfingar, armbeygjur og fleira!  Tíminn í dag var svo allra erfiðasti! En þetta er bara einum of gaman!

Courtney sem býr með mér á afmæli á morgun svo við ætlum að halda partý. Reyndar ætlum við að halda það á fimmtudaginn í staðinn því það er meiri partý dagur.  þemað er SUMAR og ætlum við öll að klæðast sumarfötum, drekka drykki úr kókoshnetum og vera með blómakransa og hafa þykjustu sumar því það er venjulega sumar þegar hún á afmæli :)

ætla að hafa þetta bara stutt núna, er að fara í háttinn!!

Góða nótt :)

Posted in Uncategorized | 3 Ummæli

Sun is shining, the weather is sweet….!

hallóhalló

Varð bara að monta mig að í dag fór ég í kjól, einungis í peysu yfir og í sandölum í skólann!! Hér er sko búið að vera geggjað veður í dag! 14 stiga hiti gott fólk!!

Fór í dag í fyrsta skiptið í ræktina…hef bara verið í kicboxtímum og að skokka úti hingað til. Ég gekk inn í lyftingasalinn og fékk skrítið augnaráð frá öllum STRÁKUNUM þar inni. Stelpur hér í Dunedin eru víst ekki mikið fyrir það að lyfta og fara nær aldrei þarna inn er mér sagt haha. En ég held mínu striki og lyfti þá bara með strákunum :)

Fór líka með Jilz mentornum mínum í lunch að borða sushi..8 bitar á 500 kall takk fyrir!! NAMMI!

Á morgun erum við Jilz að fara í Speight´s Tour…Speight´s er Nýsjálenskur bjór og er stolt suðureyjunnar eða the proud of the south eins og þeir auglýsa sig :) Það verður spennandi að sjá! Ég reyndar missi af fríum mat sem uni flats office ætlar að gefa okkur. það er víst einu sinni á önn þar sem þau búa til Dinner fyrir okkur. En ég fæ frían bjór í staðinn haha.

Nú er aðeins 2 vikur í Mid semester breakið. Get ekki beðið held meira að segja að ég verð að kaupa mér sundföt til þess að geta farið í sjóinn því veðrið á að vera alveg frekar gott alla vega 18 gráður  ef ekki meira hehe :)

Hálf íslenska stelpan er búin að bjóða mér í sumar að heimsækja sig og fjölskyldu sína á norðureyjunni! það verður öruggleg svaka stuð! Svo er Jilz búin að bjóða mér til Chch(christchurch) og vera með fjölskyldu hennar yfir jólin ef mig langar. Svo sagði hún að ég mætti bjóða öllum vinum mínum ef ég vildi! Fólkið hér í Nz er alveg ótrúlegt! af hverju getum við Íslendingar ekki verið svona?? sæuð þið það fyrir ykkur að margar fjölskyldur á Ísl myndu bjóða heilum hóp af fólki heim til sín yfir þessa “heilugu” hátíð…njjeee sé það ekki gerast!

Gleymdi að segja hér frá chch ferðalaginu að  við fengum að gista í campusinum hjá krökkunum í skólanum í Chch. ÞAU HAFA HITUÐ HÚS OG KONU SEM ÞRÍFUR!!!  og þau borga það sama og allir krakkarnir í mínum skóla. Eeen myndi samt ekki vilja búa þar! þau búa öll í svona blokkum og þetta er meira svona eins og heimavist og þau eru svo langt frá öllu að þau þau þurfa að taka strætó hver tsem þau fara.

Ég og Jilz vorum svo að plana ferð til Queenstown í september. Vinkona hennar á afmæli og þeim langar að fara eitthvað svo ég ætla bara að skella mér með og kíkja aðeins á bretti og svona!

úffúff var að skipuleggja mig í skólanum og var að fatta að ég hef 5 stór verkefni sem ég áeftir að gera og öll fyrir sama daginn í byrjun október. þetta er nú meira ruglið. Svo er ég nú þegar búin að gera 2 ritgerðir og er að gera þá 3 núna. En ég þarf sem betur fer bara að taka 2 próf í enda annar svo það verður lúxus.

annars langaði mér bara aðeins að láta heyra í mér!

Kveðja úr sólinni!!

-LorY

P.s. er að borða þurrkað Mangó!! sjitt hvað það er gott! Mæli með þessu!

Posted in Uncategorized | 2 Ummæli

komin heim frá christchurch

hellú! var að koma heim frá Christchurch, fór að sjá rugby leikinn all blacks vs australia!

Er alveg dauðuppgefin við vöknuðum kl. sjö í morgun til þess að fara í rútu heim. Sváfum í c.a. 2 tíma svo ég var í verstu rútubílferð ævi minnar áðan.
Rugby leikurinn var awesome…samt svo erfitt að fylgjast mikið þar sem ég kann ekki reglurnar svona t.d. en þetta var skemmtileg upplifun. All blacks vann að sjálfsögðu. fyrir þá sem ekki vita þá eru all blacks þekktir fyrir maori dansinn sinn eða Haka dansinn sem þeir dans alltaf fyrir leik. Getið sé það hér:

Setti inn myndir af þessu öllu saman á facebook og svo er ég líka búin að setja inn nokkrar myndir af skólanum mínum og skólalóðinni. Kemur svo meira í það safn seinna!

bleble í bili

Posted in Uncategorized | 1 ummæli

Sweet as!

Heil og sæl!!

Í dag á ég og Nýja sjáland 4 vikna afmæli og ég verð bara ástfangnari með hverjum deginum. Ég trúi því varla að ég sé búin að vera hér í mánuð. Þetta er búið að vera alveg hreint ævintýri. Það fyndna er að eftir að hafa verið hér í 2 vikur var ég byrjuð að hugsa á ensku. Svo þegar ég er að tala íslensku þá bæti ég stundum enskum orðum inn í. Eins og t.d. var ég að segja um daginn að ég ætlaði að senda einhverjum sms. Þæu kom þetta út úr mér: já ég texta svo bara á þig! haha

Hér er alltaf eitthvað í gangi og er ég búin að reyna að vera dugleg að taka eins mikið af myndum og ég get (þær eru á facebook).  

Eitt er víst að NýSjálendingar kunna ekki að klæða sig. Flestir strákrnir hérna mæta í skólann berfættir í flipp flopps (svona sandölum með bandi á milli tánna). Margir hverjir í stuttbuxum og stutterma bol! Um miðjan vetur!! Ég geng í skólann í 66 ˚ úlpunni minni og með vettlinga og húfu eins og lítill eskimói frá Íslandi.

Stelpurnar eru ekkert skárri, þær eru berleggja í pilsum eða kjól. En þetta á þó ekki við alla krakkana í skólanum en áberandi marga hehe :) þó er veðrið hér alltaf að breytast eins og á Íslandi einn daginn fer ég í skólann á peysunni og hinn daginn er mér kalt þó ég sé í dúnúlpu.

Næstu helgi er ég og Courtney að fara á rugby leik í Christchurch, All black Vs Australia! Ég er alveg súper spennt fyrir því, hef í raun aldrei fattað reglurnar í þessum leik, né séð svona live svo þetta verður áhugavert að sjá.  Courtney þekkir stráka sem eru í sama prógrammi og hún er í frá Bandaríkjunum og við fáum að gista hjá þeim, sparar heilann helling að þurfa ekki að borga fyrir gistingu.

Ég er byrjuð í kickbox, þetta er sko ekkert kickbox eins og í World class laugum heldur er hver tími í 1 og hálfan tíma og manni er kennt öll nákvæm tækniatriði. Það eru alltaf tveir og tveir saman, einn heldur á púðum á meðan hinn kýlir og sparkar og svo er skiptst á. Svo að sjálfsögðu eru allskonar þrekæfingar og svona skemmtilegt. Svo ef eitthvað kemur upp á þá er ég búin að læra að verja mig haha :)

Fór líka í fyrsta salsa tímann minn í vikunni. Kom mér á óvart hvað það voru margir strákar sem voru þarna til að læra. Mér lýst ekkert smá vel á þetta. Svo eru nokkrir staðir í bænum þar sem fólk kemur saman og dansar salsa. Hlakka til að verða orðin nógu góð til að  geta dansað þar.

Við erum nokkur saman sem erum alltaf að keppa í svona liðakeppni  innan háskólans í dodgeball sem er einskonar brennibolti. Við erum búin að keppa tvisvar, töpuðum einu sinni og gjörsamlega rústuðum keppninni í seinna skiptið. Eini gallinn er að við erum alltaf að keppa beint eftir kickbox æfingu svo maður er frekar mikið búinn á því í enda kvöldsins hehe:)

Seinustu helgi fórum við til Sandfly bay að skoða mörgæsir með gul augu og sæljón. Mörgæsirnar voru eitthvað feimnar og héldu sig bara upp í klettunum svo ég gat ekki alveg séð þær nálægt en við komust mjög nálægt sæljónunum. Ég fór eiginlega of nálægt þeim og þá stóðu tvö sæljón upp og byrjuðu að labba/skríða (eða hvað sem þau gera) frekar mikið hratt að mér. Án djóks ég held að sæljónin hafi ætlað að borða mig ég er alveg viss um það!!

Í gær fórum við til Tunnel beach sem er aðeins 2 km akstur frá Dunedin, en sagan er sú að það  var maður sem gróf sjálfur göng til þess að komast niður á þessa strönd fyrir dóttur sína sem langaði svo að fara þangað niður.  En göngin og ströndina getið þið séð á face og eina mynd hér að neðan

Ég og Celia stelpa sem býr í næsta húsi erum að pæla í að kaupa okkur bíl. Það eru nokkrir hér búnir að gera það og það er frekar þægilegt ef maður vill skreppa eitthvað út á land.  En við verðum báðar hér í 1 ár svo þetta gæti líklega verið ódýrara en að vera alltaf að vesenast í rútum. En við myndum þá fá fleiri með okkur og þá yrði þetta svona kannski 20 þús á mann.

Ég var um daginn að fara inn á einn skemmtistað og þar var stelpa að vinna í dyrunum sem spurði hvaðan ég væri og þá sagði hún mér að stelpa sem leigir með henni er frá Íslandi. Hún sagði mér að finna hana á facebook og ég gerði það og þessi stelpa er s.s. hálf íslensk og hálf nýsjálendingur en ég held hún tali ekki íslensku. En hún er ekkert smá krúttleg gaf mér númerið sitt og vil endilega hitta mig.  Sagðist hafa sagt pabba sínum sem er íslenskur og býr líka í Nz að hér væri stelpa frá Íslandi og honum fannst þetta voðalega spennó haha. Við erum búnar að plana að hittast bráðum.:)

Í enda ágúst er svokallað mid-semester break, þá er viku frí í skólanum. Við erum búin að bóka og plana ferð til Tauranga á norðureyjunni. Mamma hans Jasons sem er kiwi hostinn minn á heima þarna og hún á risa hús við ströndina. Hún verður ekki heima á þessum tíma svo við erum 7 krakkar sem ætlum saman þangað.  Á þessum tíma er veðrið víst miklu betra og við verðum með tvo bílaleigubíla til þess að geta farið í dagsferðir og svo á kvöldin verður það bara bál á ströndinni að grilla sykurpúða! Ljúfa líf :)

Ég var byrjuð að hafa áhyggjur hvað ég ætti eiginlega að gera um áramótin. En þá er víst voða stór tónlistarhátíð hér í nz. Þá er svona stemning eins og á þjóðhátíð. Gist í tjaldi og skemmt sér í 3 daga. Svo ætlar hún Þórhildur mín að koma að heimsækja Lárusín!! Get sko ekkið beðið eftir því að geta upplifað þetta með góðri vinkonu :)

Það sem ég elska við Dunedin so far:

-          Rob roy dairy, þar færðu RISA kúluís, tvær bragðtegundir fyrir 2.20 dollara sem er c.a. 190 kr. Einum of gott!

-          Fugla sönginn sem ég vakna alltaf við, veit ekki hvaða fugl þetta er, verð að komast að því.

-          Fögin sem ég er að læra

-          Kennarana mína, þeir eru snillingar!

-          Nýju vinina

-        Kmart og warehouse…svona hagkaupsbúðir nema þúsund sinnum ódýrari 

-        Ef ég fer út að borða þá get ég borgað $3 fyrir að koma með mitt eigið vín inn á staðinn. Mesta snilld sem ég veit um!

-        ódýrt Sushi

-        manni leiðist sko aldrei!!

 Og svo margt fleira sem ég man ekki núna! :)

Það sem er frekar spes og eitthvað sem þarf að venjast hérna er:

-          Þú þarft að borga fyrir ruslið svo við reynum að troða öllu ruslinu fyrir heila viku í einn stóran ruslapoka.

-          Kuldinn inni í húsunum

-          Hvað rafmagnið er dýrt ( maður er allt of góður vanur haha)

-          Fólk virðist ekki geta sagt nafnið mitt rétt svo ég þarf að kynna mig sem Lara með amerískum hreim haha! Finnst það þó skárra en að fólk muni ekki nafnið mitt eða þori ekki að segja það við hræðslu á að segja það vitlaust. En spánverjarnir og ítalirnir kunna þetta!

-         Klór lyktin af vatninu hérna….bragðast sam alveg ágætlega!

-         allir hér eru vinstrihneigðir ég lenndi alltaf í hálfgerum árekstri við fólk því það labbar alltaf í öfuga átt við mig. svo t.d. eins og á bókasafninu er inngangurinn vinstra meginn en útgagnurinn hægra meginn…tók pínu tíma að venjast því haha :)

Annars er ekkert slæmt hérna í Dunedin það er bara þannig!

Annars er ég er búin að ná mér í einhverja flensu hér í Nz en vonandi fer það að lagast. Held ég hafi ofgert mér í kickboxi á fimmtudag hehe :)

Hafið það gott um verslunarmannahelgina! Ég er allavega búin að eiga frábæra helgi :)

besos!

Posted in Uncategorized | 5 Ummæli