Sun is shining, the weather is sweet….!

hallóhalló

Varð bara að monta mig að í dag fór ég í kjól, einungis í peysu yfir og í sandölum í skólann!! Hér er sko búið að vera geggjað veður í dag! 14 stiga hiti gott fólk!!

Fór í dag í fyrsta skiptið í ræktina…hef bara verið í kicboxtímum og að skokka úti hingað til. Ég gekk inn í lyftingasalinn og fékk skrítið augnaráð frá öllum STRÁKUNUM þar inni. Stelpur hér í Dunedin eru víst ekki mikið fyrir það að lyfta og fara nær aldrei þarna inn er mér sagt haha. En ég held mínu striki og lyfti þá bara með strákunum :)

Fór líka með Jilz mentornum mínum í lunch að borða sushi..8 bitar á 500 kall takk fyrir!! NAMMI!

Á morgun erum við Jilz að fara í Speight´s Tour…Speight´s er Nýsjálenskur bjór og er stolt suðureyjunnar eða the proud of the south eins og þeir auglýsa sig :) Það verður spennandi að sjá! Ég reyndar missi af fríum mat sem uni flats office ætlar að gefa okkur. það er víst einu sinni á önn þar sem þau búa til Dinner fyrir okkur. En ég fæ frían bjór í staðinn haha.

Nú er aðeins 2 vikur í Mid semester breakið. Get ekki beðið held meira að segja að ég verð að kaupa mér sundföt til þess að geta farið í sjóinn því veðrið á að vera alveg frekar gott alla vega 18 gráður  ef ekki meira hehe :)

Hálf íslenska stelpan er búin að bjóða mér í sumar að heimsækja sig og fjölskyldu sína á norðureyjunni! það verður öruggleg svaka stuð! Svo er Jilz búin að bjóða mér til Chch(christchurch) og vera með fjölskyldu hennar yfir jólin ef mig langar. Svo sagði hún að ég mætti bjóða öllum vinum mínum ef ég vildi! Fólkið hér í Nz er alveg ótrúlegt! af hverju getum við Íslendingar ekki verið svona?? sæuð þið það fyrir ykkur að margar fjölskyldur á Ísl myndu bjóða heilum hóp af fólki heim til sín yfir þessa “heilugu” hátíð…njjeee sé það ekki gerast!

Gleymdi að segja hér frá chch ferðalaginu að  við fengum að gista í campusinum hjá krökkunum í skólanum í Chch. ÞAU HAFA HITUÐ HÚS OG KONU SEM ÞRÍFUR!!!  og þau borga það sama og allir krakkarnir í mínum skóla. Eeen myndi samt ekki vilja búa þar! þau búa öll í svona blokkum og þetta er meira svona eins og heimavist og þau eru svo langt frá öllu að þau þau þurfa að taka strætó hver tsem þau fara.

Ég og Jilz vorum svo að plana ferð til Queenstown í september. Vinkona hennar á afmæli og þeim langar að fara eitthvað svo ég ætla bara að skella mér með og kíkja aðeins á bretti og svona!

úffúff var að skipuleggja mig í skólanum og var að fatta að ég hef 5 stór verkefni sem ég áeftir að gera og öll fyrir sama daginn í byrjun október. þetta er nú meira ruglið. Svo er ég nú þegar búin að gera 2 ritgerðir og er að gera þá 3 núna. En ég þarf sem betur fer bara að taka 2 próf í enda annar svo það verður lúxus.

annars langaði mér bara aðeins að láta heyra í mér!

Kveðja úr sólinni!!

-LorY

P.s. er að borða þurrkað Mangó!! sjitt hvað það er gott! Mæli með þessu!

This entry was posted in Uncategorized. Bookmark the permalink.

2 Responses to Sun is shining, the weather is sweet….!

  1. auja says:

    Þú kannt þetta sko greinilega Lára enda ertu ekki bara falleg heldur líka með hjartað á réttum stað. Það á eftir að koma þér þangað sem þú vilt.
    (smá svona systravæmni;)

    Elska þig krúsan mín!!

    • Lára says:

      Elsku auja mín sakna þín svo mikið! Alltaf gaman að fá svona væmin komment annað slagið hehe. Maður áttar sig alltaf meira og meira á því hvað maður á góða að. Og sérstaklega þegar maður er svona langt í burtu.

      Knústu alla í fjöslkyldunni frá mér og skipaðu Nóanum að hætta að stækka! hehe (hey áttu ekki einhverjar myndir til þess að senda mér í maili? :) )

      Elska þig yndislegust!! :*

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s