hej allehoopa

Helló

 Var að fá próftöfluna mína, ég fer aðeins í 2 próf!

 1. prófið er 20. október og próf nr. 2 er 2. nóvember!! jeijeijj!!  Svo ég fæ góðan tíma á milli…samt kannski einum of góðan. En það er allt í lagi :)  

Prófatíminn er venjulega til 13. nóv svo ég græði þarna 2 vikur til að  gera eitthvað ossalega skemmtilegt :)

Annars er ég bara á fullu að gera ritgerðina mína núna. Ég á að tala um að Hótel séu “home away from home” sem mér finnst bara rugl. Ég fer frekar á hótel til þess að komast í burtu frá heimilinu og það að hafa hreingerningakonu og vera með RISA sundlaug í garðinum og bar er ekki heimili fyrir mér hehe :) Svo þetta verður bara gaman að skrifa um og gagnrýna. Því mjög mörg hótel auglýsa sig svona.

Var að koma úr kickboxtíma! Úfff! þessa vikuna er fitness vika! Þá lærum við ekki nýja tækni heldur keyrum okkur alveg í gegn með því að sparka og kýla í hvort annað og gera allskonar hræðilegar hoppuæfingar, armbeygjur og fleira!  Tíminn í dag var svo allra erfiðasti! En þetta er bara einum of gaman!

Courtney sem býr með mér á afmæli á morgun svo við ætlum að halda partý. Reyndar ætlum við að halda það á fimmtudaginn í staðinn því það er meiri partý dagur.  þemað er SUMAR og ætlum við öll að klæðast sumarfötum, drekka drykki úr kókoshnetum og vera með blómakransa og hafa þykjustu sumar því það er venjulega sumar þegar hún á afmæli :)

ætla að hafa þetta bara stutt núna, er að fara í háttinn!!

Góða nótt :)

This entry was posted in Uncategorized. Bookmark the permalink.

3 Responses to hej allehoopa

  1. Stella Rún says:

    Elsku mús!

    Það er bara einum of gaman að skyggnast aðeins inn í líf skiptinemans í Dunedin ;) Æðislegt að heyra hvað allt gengur vel!

    Kossar og knús að heiman
    Stella Rún

  2. heba Sigurgeirsdóttir says:

    Elsku Lára haltu áfram að vera dugleg í blogginu,
    það er svo ótrúlega gaman að lesa um það sem þú ert að gera, og ég er svo fáránlega stolt af stelpunni minni að ég er alltaf að segja kúnnunum mínum
    hvað þú ert að taka þér fyrir hendur, hvað þú ert fráábær og dugleg flott og æðisleg :o )
    mér finnst líka barasta svo rosalega gott hvað þú ert að plumma þig frábærlega vel
    stórt knús og faðmlag
    mamma

  3. Thury says:

    knús á þig xxx

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s