Jæja! Núna er allt á fullu í skólanum! Skiladagur fyrir öll stóru verkefnin eru í byrjun október nánast á sama degi! Prófin byrja 20 október svo þetta er allt að skella á! Þórhildur mín er búin að bóka flug til mín og kemur 28 des! Ég sko titra af spenningi!
Ég skrapp til Wanaka um helgina! Wanaka er bær sem er c.a. 3 tímum frá Dunedin og er skíðabær! Við fórum 12 krakkar saman! Gistum á Base backpackers sem var bara hið fínasta hostel. Vorum sett í 2 herbergi eitt 8 manna og eitt 10 manna. Ég var svo heppin að vera í 8 manna því í því herbergi vorum bara við krakkarnir og enginn sem við þekktum ekki. Greyjið hinir krakkarnir lentu með fólki sem var frekar subbulegt og illa lyktandi og greinilega búin að vera þarna í viku og hengu bara inn á herberginu tímum saman hahaha. En ég meina við hverju býst maður þegar maður fer á svona backpackers…!
Þetta var rosa spennandi og aldrei ef ég farið í svona skíðabæ og upplifað þessa stemningu. Við mættum þarna á föstudeginum fengum okkur að borða, skoðuðum bæinn og fengum okkur nokkra öllara en svo var bara farið heim því það var ræs kl. 06.30 næsta dag! Við vorum aðeins 5 sem vildum fara á skíði/ bretti en hin ákváðu að fara í fjallgöngur, mountain biking eða á hestbak. Við vorum mætt upp í fjall rúmlega 09:00 og fórum ekki heim fyrr en kl. Fjögur. Við vorum 2 á bretti en hin voru á skíðum. Kim sem var á bretti er alltaf á hjólabretti og hefur farið oft á snjóbretti svo hann var alveg heví góður og skiljanlega nennti ekki að hanga með mér svo ég var mestan tíman ein. Er alveg búin að ná góðum tökum á þessu og dett nánast aldrei haha. En vantar svona pínu meiri tækni. Þegar ég var búin að týna öllum og búin að vera alein í c.a. 1 og hálfan tíma ákvað ég að hingað og ekki lengra nú hætti ég að reyna að vera kúl á bretti og skelli mér á skíði. Ég kann þó að skíða almennilega haha! Fór niðrí skíðaleiguna og spyr hva kosti að leigja skíði. $37 segir stelpan (ég nýbúin að borga 50 dollara fyrir leigu á brettinu og útifatnaði) Var ekki aaalveg að tíma þessu. Þá fer hún e-ð að spurja mig..heyrðu bíddu ertu ekki á bretti af hverju viltu ekki vera á því? Ég segi henni það og stelpan vorkennir mér svona allsvakalega að hún gefur mér fría 2 tíma í kennslu á snjóbretti sem kostar $60!!!! (c.a. 5500 kr.) við höfðum öll ákveðið að hittast kl. 12:30 í kaffiteríunni svo ég var mætt soldið fyrr og sat úti að bíða eftir krökkunum. Enn frekar pirruð. Kemur einhver bretta strákur frá Ástralíu og byrjar að tala við mig og segir að hann viti alveg nákvæmlega hvernig á að láta mig slappa af fyrir brettakennsluna. Og splæsir á mig bjór haha! Síðan bauð hann okkur krökkunum í partý um kvöldið sem reyndar varð ekkert úr en hann var voða næs! Eftir hádegi fór ég svo fór í asskoti fína 2 tíma í kennslu og er bara alveg orðin sleip á brettinu. Núna má bara ekki líða 1 og hálft ár á milli aftur þangað til að ég fer aftur upp í fjöll.
Á laugardagskvöldið sátum við inn 8 manna herberginu öll að drekka í laumi því það má ekki drekka inn á hostelinu haha! Íslenskur strákur sem er að læra að vera skíðakennari í Wanaka kom og kíkti á okkur og við sýndum þeim hvernig íslenskir víkingar haga sér! Wanaka er ekki beint partýbær…eða hér eru alveg nokkrir pöbbar en allt lokar kl. Eitt sem var frekar lame. En ég skemmti mér þó konunglega! Á sunnudeginum var tekið því heldur rólega og farið snemma heim sem var reyndar rosa fínt því ég þurfti að læra alveg heilan helling. En ég mun pottþétt fara til Wanaka aftur maður verður að halda brettahæfileikunum við haha!
Og já æi gleymdi hleðslutækinu á myndavélinni svo það eru engar myndir frá Wanaka:S
Hér í Dunedin er búið að vera rosa fínt veður upp á síðkastið. Seinasta miðvikudag skelltum við okkur íslendingarnir á kaffihús, sátum úti í sólinni og drukkum bjór! Og ég er ekki frá því að ég hafi fengið pínu tan þann daginn! Núna eru öll blómin byrjuð að blómstra og veðrið verður bara betra með hverjum deginum. Thank god!
Ég er svona aðeins að gæla við þá hugmynd að þegar þórhildur er farin aftur heim í janúar að ég skelli mér bara til ástralíu í einhvern tíma og svo til Malasíu, Cambodiu, Laos, Vietnam og Thailand. Það kostar nefninlega bara c.a. 30 þúsund að fara til Ástralíu og sama að fara frá Ástralíu til Malaysia. En þetta er bara hugmynd sem ég er voða spennt fyrir en þetta kemur bara í ljós!
Annars ætla ég bar aað hafa þetta stutt núna allt of mikið að læra! Bless í bili!
Hæ Lára mín.
verður þú ekki í skólanum eftir áramót?
Spurði bara útaf áhuga þínum um Asíu ferðalag. En ertu ekki að fylgjast með Söndru ? Hún er nátturulega á leið á alla þessa draumastaði þína svo það er sniðugt að kíkja á myndir hjá henni og fylgjast með blogginu hennar.
Alltaf gaman að gera svona hluti á meðan maður getur ég meina engin börn og svoleiðis.
Annars virðist þú hafa ágætan tíma til að ferðast um landið sé ég.
Nú Hannes og Gulla eru að fara til Ástralíu um áramótin, Gulla á ættingja þar reindar á tveimur stöðum, og þetta er fimmta skiptið sem þau fara þangað.
Ég er nú að fara til London á sama tíma og Harpa,Ragnheiður og Ollý svo ég ætla að hitta þær á einhverjum bar þarna úti + Þurý mig hlakkar rosalega til.
Hafðu það gott.
knús og faðm þín frænka
Hæ solla mín! jú verð í skólanum eftir áramót en skólinn byrjar ekki fyrr en í byrjun mars svo ég hef nægan tíma til að ferðast. Var reyndar að fatta að auðvitað þarf ég að fara í allskonar sprautur og læti fyrir þetta held ég svo ég veit ekki hverni ég færi að því hérna í Nz eða hvort það sé svona rosa dýrt eins og á Ísl. þarf að athuga þetta betur! Jú er aðeins búin að vera að fylgjast með Söndrunni svona þegar ég sit upp á bókasafni að þykjast læra en heng í staðinn á facebook eða að lesa blogg haha! get ekki beðið eftir því að vera frjáls svo erfitt a ðvera í öðru landi og þurfa að vera að læra! passar ekki alveg hehe
ohh ansas ég hefði nú getað hitt kannski á þau! En ég og Þórhildur verðum á svaka tónlistarhátíð yfir áramótin og að ferðast um norðureyjuna alveg til 16. janúar svo ég missi örugglega af þeim!
Hafðu það gott í London! ef þið hittist verðið þið að taka myndir svo ég hafi e-ð meira að skoða á facebook hahahha! kisskiss og knús:*
p.s. æðislega gaman að fá svona komment frá þér Solla! Gaman að vita að það sé allavega einhver að lesa þetta og fylgjast með hehe